12 reynsluspor

1.    Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart mat og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.

2.    Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.

3.   Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.

4.    Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.

5.   Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.

6.    Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.

7.    Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.

8.    Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.

9.   Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.

10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar útaf bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.

11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.

12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum ofætum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.