Svæðisráðstefna GSA samtakanna

Svæðisráðstefna GSA samtakanna verður haldin laugardaginn 7. mars 2026 kl. 14:00-16:00 á Zoom. 

Dagskráin er eftirfarandi: 
1. Skýrsla svæðisnefndar um störf sín á liðnu starfsári 
2. Reikningar svæðisnefndar lagðir fram til samþykktar 
3. Skýrsla starfsnefnda um störf sín á liðnu starfsári 
4. Kosning í hlutverk innan svæðisnefndar – endurnýjun meðlima 
5. Önnur mál

 Bið starfsnefndir (SOS nefnd, vefnefnd og útgáfunefnd) og gjaldkera um að vera tilbúin með ársreikning og skýrslu um starf ársins. 

 Hlakka til að sjá ykkur, bið ykkur vinsamlegast að láta vita hvort þið komist eða ekki. 

Póstlisti GSA samtakanna


Á svæðisráðstefnu 14. mars 2024 var ákveðið að leggja niður símalista GSA samtakanna og breyta honum í póstlista. Þannig að fólk getur skráð sig sjálft á listann og afskráð sig. 
Hlutverk póstlistans er að senda tilkynningar í tölvupósti þegar það eru upplýsingar sem þurfa að komast til félaga samtakanna. Allir sem hafa verið skráðir á símalistann þurfa að skrá sig aftur á póstlistann.

Hægt er að skrá sig á póstlistann hér, en einnig er hægt að skrá sig neðarlega á hliðarstikunni á heimasíðunni. Athugið að þegar búið er að skrá netfang, þarf að staðfesta skráninguna með því að samþykkja tölvupóst sem viðkomandi fær. Áfram þarf að senda tölvupóst á netfangið simalisti@gsa.is til þess að senda tilkynningar á póstlistann.