Svæðisnefndarfundur 15. janúar og félagatal

Svæðisnefndarfundur GSA-samtakanna á Íslandi verður haldinn – mánudaginn 15. janúar 2018, kl. 20:00- 22:00 að Eyjabakka 14 1. hæð til hægri.


Dagskrá:
1. Styttri fundargerð frá síðasta fundi lesin yfir til samþykktar.
2. Oddamaður fer yfir stöðu nefnda hjá deildartengilið hverrar nefndar; Vefnefnd,    Útgáfunefnd og SOS nefnd.
3. Undirbúningur fyrir afmælisfund sem haldinn verður 10. febrúar.
4. Önnur mál.
5. Dagsetning, tími og staður fyrir næsta fund ákveðinn.

Deildarfulltrúar allra skráðra GSA-deilda mynda svæðisnefnd GSA-samtakanna á Íslandi. Varadeildarfulltrúi tekur sæti deildarfulltrúa í forföllum hans. Deildafulltrúar og varadeildafulltrúar deilda taka á móti ábendinum sem félagar vilja koma að á fundi,  einnig er hægt að senda ábendingar á gsa@gsa.is Öllum GSA-félögum er velkomið að sitja svæðisnefndarfundi. Þeir hafa málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.


Kveðja
Oddamaður, HBP

 

Athugið að við minnum á einnig á félagatalið. Virkir félagar sem hafa ekki skráð sig nú þegar mega endilega skrá sig á http://greysheet.us16.list-manage.com/subscribe?u=c683b2e2bb47389d10568c41e&id=4d8b98cbfb