Svæðisnefndarfundur 20. maí 2017

Svæðisnefndarfundur GSA-samtakanna á Íslandi verður haldinn – 20. maí 2017, kl. 13-15 í Hljómskálagarðinum

 

Dagskrá:

1. Styttri fundargerð frá síðasta fundi lesin yfir til samþykktar.

2. Oddamaður fer yfir stöðu nefnda hjá deildartengilið hverrar nefndar; Vefnefnd, Útgáfunefnd og SOS nefnd.

3. Önnur mál.

4. Dagsetning, tími og staður fyrir næsta fund ákveðinn.

 

Deildarfulltrúar allra skráðra GSA-deilda mynda svæðisnefnd GSA-samtakanna á Íslandi. Varadeildarfulltrúi tekur sæti deildarfulltrúa í forföllum hans. Deildafulltrúar og varadeildafulltrúar deilda taka á móti ábendinum sem félagar vilja koma að á fundi,  einnig er hægt að senda ábendingar á gsa@gsa.is Öllum GSA-félögum er velkomið að sitja svæðisnefndarfundi. Þeir hafa málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.

 

 

Kveðja

Oddamaður, HBP