Fresta verður fundi 30. október. Breyttur fundartími auglýstur síðar.
Category Archives: Fréttir
Svæðisnefndarfundur 30. október
Fundarboð
Svæðisnefndarfundur vegna heimsráðsráðs verður haldinn á sunnudaginn 30. október kl 11 – 12 að Hrauntunga 58, Kópavogur.
Dagskrá:
1. Fundargerð, styttri lesin frá síðasta fundi af ritara til samþykktar.
2. Alþjóðafulltrúi fer yfir atriði sem voru tekin fyrir á heimsráðsstefnunni.
3. Oddamaður fer yfir stöðu nefnda hjá deildartengilið hverrar nefndar; Vefnefnd, Útgáfunefnd og SOS nefnd.
4. Önnur mál.
5. Dagsetning, tími og staður fyrir næsta fund ákveðinn.
Einnig má senda okkur línu ef fólk kemst ekki á fundinn, við félagar eru raddir og endilega koma skoðunum á framfæri.
Deildarfulltrúar allra skráðra GSA-deilda mynda svæðisnefnd GSA-samtakanna á Íslandi. Varadeildarfulltrúi tekur sæti deildarfulltrúa í forföllum hans. Deildafulltrúar og varadeildafulltrúar deilda taka á móti ábendingum sem félagar vilja koma að á fundi, einnig er hægt að senda ábendingar á gsa@gsa.is Öllum GSA-félögum er velkomið að sitja svæðisnefndarfundi. Þeir hafa málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.
Svæðisnefndarfundur 11. september
Svæðisnefndarfundur vegna heimsráðstefnu verður haldinn á sunnudaginn 11. sept. kl 11 – 12 að Suðurbraut 2, Hafnarfirði.
Dagskrá:
Fundargerð, styttri lesin frá síðasta fundi af ritara til samþykktar.
Alþjóðafulltrúi kynnir þær tillögur sem hafa verið birtar og verða teknar fyrir á heimsráðinu.
Oddamaður fer yfir stöðu nefnda hjá deildartengilið hverrar nefndar; Vefnefnd, Útgáfunefnd og SOS nefnd.
Önnur mál.
Dagsetning, tími og staður fyrir næsta fund ákveðinn.
Hægt er að skoða tillögur hér: http://www.greysheet.org/
Einnig má senda okkur línu ef fólk kemst ekki á fundinn, við félagar eru raddir og endilega koma skoðunum á framfæri.
Deildarfulltrúar allra skráðra GSA-deilda mynda svæðisnefnd GSA-samtakanna á Íslandi. Varadeildarfulltrúi tekur sæti deildarfulltrúa í forföllum hans. Deildafulltrúar og varadeildafulltrúar deilda taka á móti ábendingum sem félagar vilja koma að á fundi, einnig er hægt að senda ábendingar á gsa@gsa.is Öllum GSA-félögum er velkomið að sitja svæðisnefndarfundi. Þeir hafa málfrelsi en ekki atkvæðisrétt.
Svæðisnefndin biðst velvirðingar á stuttum fyrirvara á fundarboði, en svæðisnefndin hefur verið að bíða eftir að allar nefndir frá heimsráðinu hafa skilað inn tillögum.
Fundur fellur niður á Akureyri þriðjudaginn 5. júlí 2016
Ekki verður fundur á Akureyri þriðjudaginn 5. júlí kl 20:30.
Opinn kynningarfundur á Akureyri 19. apríl kl. 20:30
Opinn kynningafundur GSA-samtakanna á Akureyri verður haldinn þann 19. apríl 2016
kl. 20:30 í safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
(gengið inn kirkjuinngang að baka til, hægri dyr)
Ef þú telur þig vera haldin(n) matarfíkn eða vilt kynna þér samtökin, vertu þá hjartanlega velkomin(n). Við tökum vel á móti þér.
Svæðisnefndarráðstefna GSA
Svæðisnefndarráðstefna GSA verður haldin laugardaginn 12. mars í Hljómskálagarðinum kl: 13-15.
Dagskrá svæðisráðstefnu:
1. Skýrsla svæðisnefndar um störf sín á liðnu starfsári
2. Reikningar svæðisnefndar lagðir fram til samþykktar
3. Skýrsla starfsnefnda um störf sín á liðnu starfsári
4. Skýrsla svæðisnefndarfulltrúa um heimsráðstefnu og málefni samtakanna á heimsvísu
5. Almennar umræður um áherslur og framtíðarverkefni svæðisnefndar
6. Önnur mál
16 ára afmælis- og kynningarfundur GSA samtakanna
16 ára afmælis- og kynningarfundur GSA-samtakanna verður haldinn laugardaginn 30. janúar 2016 kl. 14 til 16 (húsið verður opið frá kl. 13.30) í Von, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Á fundinum deila GSA-félagar reynslu sinni, bæklingar liggja frammi og hægt er að fá upplýsingar um samtökin og lífið í lausninni.
Sjá einnig: Auglýsing Afmælisfundur GSA 2016
Landsráðstefna GSA samtakanna 2015
Landsráðstefna GSA samtakanna verður svo haldin laugardaginn 28. mars kl. 13-15 í Hljómskálanum. Allir GSA félagar velkomnir, deildafulltrúar munu þar kjósa um breytingatillögu á skipan landsþjónustu og þessar breytingar á samþykktum svæðisnefnda. Vinsamlegast kynnið ykkur þessar tillögur og sjáumst í Hljómskálanum laugardaginn 28. mars n.k.
Afmælisfundur 24. janúar 2015
Nánari upplýsingar: Afmælisfundur GSA 2015
Laugardagsfundur í Hljómskálanum fellur niður 24. janúar
Laugardagsfundurinn í Hljómskálagarðinum 24. janúar fellur niður vegna kynningar- og umræðufundar Landsþjónustu GSA samtakanna sem verður haldinn kl 12:00 – 13:30 sama dag.