- Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu GSA samtakanna kominn.
- Í málum deilda er aðeins einn leiðtogi, kærleiksríkur Guð eins og hann birtist í samvisku hvers hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
- Til þess að gerast GSA félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta hömlulausu ofáti.
- Sérhver GSA deild á að vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða GSA samtökin í heild.
- Sérhver GSA deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja ofætum sem enn þjást boðskap samtakanna.
- GSA deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn eða fylgi svo lausafé, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki upphaflegum tilgangi.
- Sérhver GSA deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
- Félagar í GSA samtökunum eru ætíð einungis áhugamenn, en þjónustustöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
- GSA samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.
- GSA samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
- Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við alltaf að gæta nafnleyndar.
- Nafnleyndin er andlegur grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.