Ég er í fráhaldi í dag vegna þess að ég vigta og mæli þrjár máltíðir á dag
af Gráu síðunni.
Ég skrifa þær niður og tilkynni til sponsors, einn dag í einu,
þrátt fyrir allt sem gerist í lífi mínu.
Ég fæ mér ekkert á milli mála nema svart kaffi, te,
sykurlaust gos eða sykurlaust tyggjó.
Og fráhaldið er það mikilvægasta í lífi mínu í dag.